Nýjast á Local Suðurnes

Kosmos & Kaos gáfu Minningarsjóði Ölla nýja vefsíðu

Vefþjónustufyrirtækið Kosmos & Kaos og hýsingarþjónustan 1984 gáfu á dögunum Minningarsjóði Ölla nýja heimasíðu. Á heimasíðunni er hægt að lesa um sjóðinn og Ölla, sækja um styrki sem og fá upplýsingar um hvernig hægt er að styrkja sjóðinn með fjárframlögum. Þá er hægt að horfa á heimildarmynd sem gerð var um Ölla á heimasíðunni.

Örlygur Aron Sturluson, Ölli, var einn efnilegasti körfuknattleiksmaður landsins, þegar hann lést aðeins 18 ára að aldri. Minningarsjóður Ölla styrkir börn til íþróttaiðkunar sem ekki eiga kost á því vegna bágrar fjárhagsstöðu foreldra eða umsjónarmanna.