sudurnes.net
Kosmos & Kaos gáfu Minningarsjóði Ölla nýja vefsíðu - Local Sudurnes
Vefþjónustufyrirtækið Kosmos & Kaos og hýsingarþjónustan 1984 gáfu á dögunum Minningarsjóði Ölla nýja heimasíðu. Á heimasíðunni er hægt að lesa um sjóðinn og Ölla, sækja um styrki sem og fá upplýsingar um hvernig hægt er að styrkja sjóðinn með fjárframlögum. Þá er hægt að horfa á heimildarmynd sem gerð var um Ölla á heimasíðunni. Örlygur Aron Sturluson, Ölli, var einn efnilegasti körfuknattleiksmaður landsins, þegar hann lést aðeins 18 ára að aldri. Minningarsjóður Ölla styrkir börn til íþróttaiðkunar sem ekki eiga kost á því vegna bágrar fjárhagsstöðu foreldra eða umsjónarmanna. Meira frá SuðurnesjumMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnOpna Krakkaland á Ásbrú – Hoppukastalar og aðstaða fyrir barnaafmæliÓkeypis ráðgjöf um markaðssetningu handverksStálu tveggja milljóna króna dekkjalagerVeðurstofan gefur út gula viðvörun – Færð gæti spillst á sunnudagAuglýsing Joe and the juice í FLE tekin úr birtinguHægt að fylgjast með lokaátökunum á Heimsleikunum í SporthúsinuTekinn á 164 km hraða – Staðgreiddi rúmlega 100.000 króna sektFlugeldasýning í Grindavík í kvöldÁtján ára á allt of miklum hraða