Nýjast á Local Suðurnes

Teitur: “Ekki rétt í stöðunni að taka við Njarðvík” – Bonneau líklega áfram

Teitur Örlygsson mun ekki taka að sér þjálfun Njarðvínga í körfuknattleik fyrir næsta tímabil, hann er þó ákveðinn í að styðja við bakið á liðinu úr stúkunni. Teitur sagði í spjalli við vinsælasta körfuknattleiksvef landsins, karfan.is að margar ástæður, sem hann vildi ekki gefa upp að sinni, væru fyrir því að hann myndi ekki þjálfa lið Njarðvíkur. Teitur sagðist í samtali við sama miðil vera hættur hjá Njarðvík að loknum oddaleik liðsins gegn KR á dögunum.

“Ég er harðákveðin í að taka mér smá pásu og fylgjast með boltanum á næsta tímabili úr stúkunni. En ég mun koma til með að styðja minn klúbb og verð í Njarðvíkurstúkunni, hvergi annarsstaðar.” sagði Teitur.

Þá sagði Teitur í samtali við Vísi.is að vinátta hans og Friðriks Inga Rúnarssonar, sem einnig hefur látið af störfum hjá Njarðvík, spilaði inn í þessa ákvörðun sína.

„Það lá ljóst fyrir strax frá upphafi. Það væri ekki rétt í stöðunni. Ekki bara út af því að bróðir minn er formaður heldur líka gagnvart Frikka [Friðriki Inga]. Hann er vinur minn og það væri asnalegt. Við stóðum og féllum með þessu saman. Þannig að ég segi bara nei í dag. En ég hef svo oft sagt bölvaða vitleysu og maður veit ekkert hvað gerist. Eins og staðan er núna er ég í fríi og ætla að njóta þess að veiða í sumar.“

Vísir.is greindi einnig frá því á dögunum að allar líkur yrðu á því að Stefan Bonneau yrði áfram í herbúðum Njarðvíkinga, miðillinn hafði eftir Gunnari Örlygssyni formanni Körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur að Bonneau liði vel í Njarðvík og að ef hann spilaði körfuknattleik hér á landi yrði það með Njarðvík.

„Honum líður mjög vel hérna í Njarðvík, en þessi meiðsli eru rosalega erfið. Það er óvanalegt að lenda í svona meiðslum á báðum hásinunum.”

„Ég tel miklar líkur á að ef hann spilar körfubolta á næstu leiktíð, þá verður það með Njarðvík. Ég get ekki staðfest það, en það eru miklar líkur á því,” sagði Gunnar.

Þá kom fram í tilkynningu sem félagið sendi frá sér á dögunum að nú hæfust viðræður við leikmenn, þar sem rætt yrði við einn í einu, og að línur tækju að skýrast í leikmannamálum félagsins á næstunni.