Nýjast á Local Suðurnes

Vilja skriflega ferla ef verk fara fram úr áætlunum

Bæjarlistinn í Suðurnesjabæ hefur óskað eftir því í bæjarráði að lagðir verði fram skriflegir ferlar ef farið er fram úr fjárhagsáætlun með tiltekin verk og þá tekið fram hvar og af hverjum leyfið er veitt ef um framúrkeyrslu er að ræða.

Það er óeðlilegt að viðaukar séu lagðir fram í bæjarráði eftir að verk er hafið eða því lokið, án þess að farið hafi fram umræða í bæjarráði og samþykki fengið þar, segir í bókun um málið.