Nýjast á Local Suðurnes

Grjóthrun vegna jarðhræringa

Vegna jarðhræringa sem nú standa yfir á Reykjanesskaga er aukin hætta á grjóthruni. Skjálfti 3.8 að stærð varð á laugardaginn um 2 km vestur af Kleifarvatni opg í dag kom tilkynning um nýlegt grjóthrun í Trölladyngju og við Grænavatnseggjar og Núpshlíðarháls, sem að öllum líkindum hrundi í þessum skjálfta.

Fyrr í sumar hefur verið tilkynnt um grjóthrun m.a. við Kleifarvatn, Litla-Hrút og Driffell. Fólk er bent á að fara varlega í bröttum hlíðum, nálægt bröttum sjávarbjörgum og forðast svæði þar sem grjót getur hrunið.

Mynd: vedur.is