Nýjast á Local Suðurnes

Þrír vildu stóra lóð á Fitjum

Þrjú tilboð bárust í eignir og stóra lóð Reykjanesbæjar við Njarðarbraut 20. Eignin var auglýst til sölu í ágúst og var óskað eftir tilboðum í eignirnar auk hugmynda um nýtingu á svæðinu. Sérstaklega var horft til samspils áætlana við markmið fyrirhugaðs deiliskipulags á svæðinu, sem nú er í vinnslu.

Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, sagði í svari við fyrirspurn Suðurnes.net að þær hugmyndir sem bárust um nýtingu á lóðinni hafi verið mis langt á veg komnar. Hann staðfesti einnig að viðræður væru hafnar við aðila um nýtingu á svæðinu.