Nýjast á Local Suðurnes

Heimila hækkun á Hafnargötu 51-55

Blue Eignir ehf. óskuð á dögunum heimildar til að bæta einni hæð ofan á Hafnargötu 55. Húsið er í dag á tveimur hæðum, en með breytingu verður heimilt að byggja þriðju hæðina allt að 3.3m, frá núverandi þakkanti.

Samkvæmt umsókn stækkar húsið um 560m2 sbr. uppdrætti JeES arkitekta ehf.

Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs dags. 16. júní 2022 var samþykkt að grenndarkynna erindið. Grenndarkynningu er lokið og athugasemdir bárust. Megin inntak athugasemda er skerðing útsýnis íbúa efstu hæða við Hafnargötu og skuggavarp á lóðir við Austurgötu. Umsækjanda var boðið að neyta andmælaréttar sem hann gerði með bréfi.

Byggingin er á lóð sem tilheyrir svæði sem er skilgreint í aðalskipulagi sem miðsvæði (M2) í þeim kafla greinargerðar aðalskipulagsins sem fjallar um svæðið kemur fram „Í samræmi við einkenni svæðisins og til að styrkja uppbyggingu þess er meiri þéttleika á M2 en öðrum atvinnusvæðum. Ekki er gert ráð fyrir stórum og rýmisfrekum verslunum. Hæðir húsa 3 – 5.“

Byggingaráformin og notkun fellur að stefnu aðalskipulags, segir í fundargerð, en húsið verður með breytingunni þrjár hæðir og áfram sem verslun og skrifstofur.

Það er óumdeilt að hækkunin veldur skerðingu á fjallasýn og veldur því að skuggavarp eykst lítillega austan við bygginguna síðdegis. Hæð byggingar verður sambærileg við byggingar á gagnstæðri hlið götunnar og sunnan megin á aðliggjandi lóð. Áformin falla því ágætlega að byggðamynstrinu. Það er mat ráðsins að fyrirhuguð uppbygging og yfirbragð byggingarinnar sé til hagsbóta fyrir umhverfið á þessum hluta Hafnargötu, samræmist stefnu sveitarfélagsins og réttlæti þannig skert útsýni. Erindi samþykkt. Segir í fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs.