Nýjast á Local Suðurnes

Hvatagreiðslur hækka og nýtt fyrirkomulag tekið upp

Reykjanesbær hefur ákveðið að taka upp nýtt fyrirkomulag við útgreiðslu á hvatagreiðslum sveitarfélagsins og verður þeim úthlutað „rafrænt“ í gegnum Nóra vefskráningar- og greiðslukerfið. Hvatagreiðslurnar verða hækkaðar í 40.000 krónur þann 1. janúar næstkomandi.

Hvatagreiðslur verða greiddar út mánaðarlega til íþrótta / tómstunda félaganna í stað þess að greiðslan fari beint til foreldra eins og gert er í dag, segir í tilkynningu. Þegar foreldri skráir barn til þátttöku í íþrótt eða tómstund þá þarf að skráningin að fara fram í gegnum Nóra kerfið.

Þegar skráning fer í gegnum Nóri er foreldrum boðið upp á að nýta hvatagreiðslur og geta því með auðveldu móti ráðstafað greiðslunni sjálfir. Ef foreldrar ákveða að nýta allan styrkinn þá lækka gjöld iðkenda strax um 40.000 krónur og hægt er að greiða eftirstöðvar með eingreiðslu eða með greiðsludreifingu.

Í tilkynningunni segir jafnframt að það muni vafalaust taka einhvern tíma að innleiða nýtt verklag og eru foreldrar þar af leiðandi beðnir um að sýna biðlund á meðan innleiðing á sér stað.