Mest lesið á árinu: Rúna um lífið í framlínunni
Covid-fréttir hafa verið margar og áberandi á árinu sem nú er að renna sitt skeið og nokkrar þeirra eru á meðal þeirra mest lesnu á sudurnes.net.
Suðurnesjakonan Rúna Tómasar gaf okkur góðfúslegt leyfi til að birta dagbókarfærslur frá starfi sínu í bakvarðarsveitinni sem vann afar gott starf á Hjúkrunarheimilinu Bergi í Bolungarvík í upphafi faraldursins.
Færslurnar sem sjá má hér gefa ágætis innsýn í það mikla og góða starf sem heilbrigðisstarfsfólk hefur skilað í faraldrinum.