Nýjast á Local Suðurnes

Grindavík getur komist á toppinn: “Sýnum í beinni hvernig Stinningskaldi virkar á okkar besta degi!!”

Grindavík mætir Breiðabliki í Pepsí-deildinni í knattspyrnu á Kópavogsvelli í kvöld. Með sigri getur Grindavík komist í toppsæti deildarinnar. Óli Stefán Flóventsson, þjálfari Grindvíkinga biðlar til stuðningsmanna liðsins að mæta á leikinn í kvöld, þrátt fyrir að hann verði sýndur í beinni útsendingu, í aðsendri grein á Grindavík.net.

“Stinningskaldi er með 16 manna rútu á leikinn á morgun sem er nú þegar hálffull. Ég ætla að fara með rútunni á leikinn og setja upp töflufund fyrir þá sem fara með.

Leikurinn verður sýndur í sjónvarpinu en ég kalla eftir því að fólkið okkar mæti á völlinn. Ég sé það fyrir mér að á Kópavogsvelli sýnum við í beinni hvernig Stinningskaldi virkar á okkar besta degi !!” Segir Óli Stefán meðal annars í greininni, sem finna má í heild sinni hér.