Nýjast á Local Suðurnes

Verkfærum og peningum stolið

Tvö þjófnaðarmál komu á borð lögreglunnar á Suðurnesjum á síðustu dögum.  Óviðkomandi  fór inn í gæludýraverslun í umdæminu og hafði á brott með sér rúmlega 12 þúsund krónur.

Þá var brotist inn í nýbyggingu og þaðan stolið verkfærum. Eigandinn saknaði tveggja borvéla ásamt hleðslutækjum, slípirokks og heyrnartóla.

Lögregla rannsakar málin.