Langir biðlistar eftir húsnæði
![Ráðhús RNB](https://i2.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2015/06/Ráðhús-RNB.jpg?resize=620%2C264)
Farið var yfir stöðu á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði í Reykjanesbæ á síðasta fundi velferðarráðs sveitarfélagsins, sem haldinn var þann 27. nóvember síðastliðinn.
Á fundinum kom fram að 98 umsóknir eru á biðlista eftir almennum íbúðum og að 67 umsóknir séu á biðlista eftir íbúðum aldraðra.
Þá kom fram á fundinum að áfram sé unnið að breytingum á reglum um húsnæðismál og lögð voru fram til kynningar drög að breytingum á umræddum reglum sem ráðið samþykkti.