Nýjast á Local Suðurnes

Elvar Már átti frábært tímabil – Sjáðu öll flottustu tilþrifin!

Mynd: Heimasíða Barry háskóla

Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson átti frábært tímabil með liði sínu Barry í bandaríska háskólakörfuboltanum, en kappinn var til að mynda í byrjunarliði í öllum 30 leikjum liðsins á tímabilinu, var valinn leikmaður vikunna nokkrum sinnum, auk þess að komast í úrvalslið SSC-deildarinnar og Suðurhluta NCAA-deildarinnar.

Íþróttadeild Barry háskóla hefur nú tekið saman öll helstu tilþrif Njarðvíkingsins unga og sett saman í eitt snilldar myndband, sem sjá má hér fyrir neðan.