Nýjast á Local Suðurnes

Þrír fluttir á sjúkrahús í Reykjavík eftir harðan árekstur

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Þrír voru fluttir með sjúkrabíl á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi eftir harkalegan árekstur tveggja bifreiða á Sandgerðisvegi í dag. Bifreiðarnar sem skullu saman komu úr gagnstæðri átt.

Ekki hafa fengist nánari upplýsingar um líðan hinna slösuðu. Að sögn lögreglu verður vegurinn lokaður til klukkan rúmlega 17 á meðan vinna stendur yfir á vettvangi. Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar tildrög slyssins.