Nýjast á Local Suðurnes

Hafa áhyggjur af orkunotkun um kvöldmatarleytið

HS veitur hafa áhyggjur af orkunotkun heimila á næstu klukkutímum, en gögn fyrirtækisins sýna að dreifikerfi rafmagns nálgast þolmörk um kvöldmatarleytið. HS veitur biðla því til íbúa á Suðurnesjum að standa saman og takmarka notkun rafmagnstækja.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum sem sjá má í heild hér fyrir neðan:

Þegar þetta er skrifað þá styttist í að klukkan verði kvöldmatur. Gögn hafa sýnt undanfarna tvo sólahringa þá hefur raforkunotkun aukist mikið seinni part dags og í kringum kvöldmat. Og því fer álag á mörgum hverfum vel yfir þolmörk og í öðrum hverfum hefur orðið útsláttur vegna álags.

HS veitur biðla því til íbúa á Suðurnesjum að standa saman og takmarka notkun rafmagnstækja.