Keflvíkingar semja við tveggja metra reynslubolta
![amu stevens keflavik](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/09/amu-stevens-keflavik.jpg?resize=620%2C264)
Keflvíkingar hafa samið við erlendan leikmann fyrir komandi tímabil í Dominos-deildinni í körfuknattleik, um er að ræða rúmlega tveggja metra háan kraft-framherja, Amin Stevens, sem spilaði í þrjú ár með Florida A&M háskólanum, við góðan orðstír.
Eftir að háskólaferlinum lauk hefur Amin spilað í Slóvakíu, Austuríki og nú síðast í Bundersligunni í Þýskalandi með prýðilegum árangri. Amin er fjölhæfur leikmaður og sterkur í kringum körfuna. Hann frákastar vel og spilar góða vörn, segir í tilkynningu frá Kkd. Keflavíkur.