Nýjast á Local Suðurnes

Njarðvíkurstúlkur í úrslit Maltbikarsins

Mynd: Skjáskot/RÚV

Njarðvíkurstúlkur eru komnar í úrslitaleik Maltbikarsins eftir ótrúlega flottan sigur á Skallagrími, en leikið var í Laugardalshöllinni í kvöld. Lokatölur 78-75 Njarðvík í vil.

Skallagrímur leiddi nær allan leikinn ef undan eru skildar upphafsmínúturnar, en Njarðvíkingar voru aldrei langt undan. Ótrúlega góður lokaleikhluti þar sem allt virtist ganga upp hjá Njarðvíkingum skilaði svo þessum sæta sigri, en gengi liðsins í deildinni hefur verið afar slakt það sem af er vetri.

Shalonda Winton fór mikinn í liði Njarðvíkur en hún setti 31 stig, tók 15 fráköst og gaf sex stoðsendingar.  Þar á eftir kom Hrund Skúladóttir með 14 stig en hún tók einnig 5 fráköst. Erna Freydís Traustadóttir var svo með 11 stig.