Nýjast á Local Suðurnes

Ódýrara í sund í Grindavík

Árskort fullorðinna í sund lækka úr 24.000 kr. í 20.000 kr. samkvæmt nýrri þjónustugjaldskrá fyrir árið 2016 sem bæjarstjórn hefur samþykkt. Árskort fjölskyldu lækkar enn meira eða úr 46.000 kr. í  30.000 og nemur lækkunin því 16.000 kr. sem er um 35%.

Með þessari lækkun er verið að hvetja Grindvíkinga til þess að nýta sundið meira og þá þjónustu sem boðið er upp á í íþróttamiðstöðinni. Stakt gjald fullorðinna hækkar úr úr 500 kr. 520 kr.