Nýjast á Local Suðurnes

Engin veikleikamerki í rekstri Grindavíkur – Langtímaskuldir aðeins 4.000 krónur á íbúa

Í skýrslu greiningardeildar Arion banka sem kynnt var á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna fyrir helgi kom fram að Grindavík væri eitt af aðeins tveimur sveitarfélögum á landinu sem hafði engin veikleikamerki skráð á sig fyrir árið 2015.

Á heimasíðu Grindavíkurbæjar kemur fram að bæjarstjórn hafi árið 2010 sett sér skýr markmið fyrir rekstur næstu ára sem voru á þessa leið:

– Árið 2011: Enginn rekstarhalli en heimilt að nýta vaxtatekjur til rekstrar
– Árið 2012: Enginn rekstrarhalli en heimilt að nýta 50% af vaxtatekjum í rekstur
– Árið 2013: Rekstur fyrir fjármagnsliði og afskriftir verði jákvæð. Engar vaxtatekjur verði nýttar til rekstar.
– Árið 2014: Rekstur fyrir fjármagnsliði og afskriftir verði amk 15% af tekjum

Þá segir á heimasíðunni að með markvissri og þrautlausri vinnu bæjarstjórnar sem og starfsmanna bæjarins náðust þessi markmið og hefur reksturinn verið afar jákvæður undanfarin ár. Þannig varð rekstrarafgangur uppá 216 milljónir árið 2015 og 195 milljónir árið 2014. Samhliða þessum mikla rekstrarafangi hafa skuldir verið greiddar mjög markvisst niður en Grindvíkingar eru aðeins að greiða 4.000 krónur á íbúa af langtímaskuldum meðan að landsmeðaltalið er 106.000 kr.

Þessar jákvæðu breytingar endurspeglast svo í lista Vísbendingar yfir draumasveitarfélög á Íslandi þar sem að Grindavík var hástökkvari síðasta árs og er nú í 3. sæti.