Nýjast á Local Suðurnes

Kosið um sameiningu Sandgerðis og Garðs í nóvember – Kynningarefni aðgengilegt á netinu

Ákveðið hefur verið að fram fari kosning meðal íbúa sveitarfélaganna Garðs og Sandgerðis þann 11. nóvember næstkomandi um sameiningu sveitarfélaganna. Snemma í sumar skipuðu bæjarstjórnir sveitarfélaganna 6 manna samstarfsnefnd um sameiningu og hefur nefndin skilað áliti ásamt skýrslu þar sem fram koma ýmsar upplýsingar um málið.

Bæjarstjórnir sveitarfélaganna hafa eins og lög gera ráð fyrir tekið málið til umræðu á tveimur fundum. Á fundi bæjarstjórnanna í gær, 5. september, var tillaga samstarfsnefndar um kjördag staðfest.

Samkvæmt 4. mgr. 119. gr. sveitarstjórnarlaga skal kynning á tillögunni og forsendum hennar hefjast eigi síðar en tveimur mánuðum fyrir kjördag.

Á heimasíðu sveitarfélaganna má nálgast kynningarefni um málið fram að kosningu. Skýrsla KPMG „Sameining sveitarfélaga – sviðsmyndir um mögulega framtíðarskipan sveitarfélaganna“ er nú aðgengileg á heimasíðunni undir sérstkökum hnappi „Sameining sveitarfélaga – kynningarefni“. Annað kynningarefni mun verða aðgengilegt á sama stað eftir því sem það verður birt.

Kosning íbúa sveitarfélaganna fer samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna. Athygli er vakin á því að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst þann 16. september hjá Sýslumanninum á Suðurnesjum og á bæjarskrifstofum Sandgerðis og Garðs.

Íbúar sveitarfélaganna eru hvattir til að kynna sér málið, taka virkan þátt í atkvæðagreiðslunni þann 11. nóvember og hafa þannig áhrif á framtíðarskipan sveitarfélaganna.

Sameining sveitarfélaga – Kynningarefni