Nýjast á Local Suðurnes

Banaslys við Fitjabraut

Tilkynnt var um alvarlegt vinnuslys við Fitjabraut í Reykjanesbæ um klukkan hálf tólf í morgun. Ljóst var þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang að um banaslys var að ræða, segir í tilkynningu frá lögreglu.

Unnið er að rannsókn málsins og frekari upplýsingar verða ekki veitta að svo stöddu, segir í tilkynningunni.