Nýjast á Local Suðurnes

Flugsveit bandaríska hersins við æfingar á B-2 Spirit vélum

Flugsveit bandaríska flughersins er mætt til landsins og verður við æfingar með bandalagsríkjum í Norður-Evrópu.Um er að ræða þrjár B-2 Spirit flugvélar með allt að 200 manna liðsafla sem mun hafa aðsetur á öryggissvæðinu í Keflavík næstu vikur á meðan æfingar standa yfir.

Undirbúningur fyrir heimsóknina hefur staðið yfir um nokkurra vikna skeið en þetta er í þriðja skipti sem flugsveit af þessu tagi kemur til Íslands, segir í tilkynningu á vef utanríkisráðuneytisins.

Viðvera bandarísku flugsveitarinnar fer fram á grundvelli varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna og er mikilvægt framlag til fælingaraðgerða í Norður-Evrópu. Landhelgisgæsla Íslands annast í umboði utanríkisráðuneytisins framkvæmd verkefnisins í samvinnu við Isavia.