sudurnes.net
Flugsveit bandaríska hersins við æfingar á B-2 Spirit vélum - Local Sudurnes
Flugsveit bandaríska flughersins er mætt til landsins og verður við æfingar með bandalagsríkjum í Norður-Evrópu.Um er að ræða þrjár B-2 Spirit flugvélar með allt að 200 manna liðsafla sem mun hafa aðsetur á öryggissvæðinu í Keflavík næstu vikur á meðan æfingar standa yfir. Undirbúningur fyrir heimsóknina hefur staðið yfir um nokkurra vikna skeið en þetta er í þriðja skipti sem flugsveit af þessu tagi kemur til Íslands, segir í tilkynningu á vef utanríkisráðuneytisins. Viðvera bandarísku flugsveitarinnar fer fram á grundvelli varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna og er mikilvægt framlag til fælingaraðgerða í Norður-Evrópu. Landhelgisgæsla Íslands annast í umboði utanríkisráðuneytisins framkvæmd verkefnisins í samvinnu við Isavia. Meira frá SuðurnesjumMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnTekin með kókaín í endaþarmi og leggöngumVel heppnað hjólreiðamót á Sjóaranum síkátaLeggja 200 milljónir í rannsóknir í HvassahrauniEigendur Bláa lónsins þátttakendur í ylstrandarverkefni við UrriðavatnÓvenju mörg þjófnaðarmál – Dýrum tækjum stoliðSpila Nirvana lög á knéfiðlu – Video!200 bandarískir hermenn við æfingar hér á landiVel heppnað Evrópumeistaramót í bekkpressu var haldið í NjarðvíkJóhann Friðrik: Fjármunum betur varið í vegakerfið en flugvöll í Hvassahrauni