Nýjast á Local Suðurnes

Gefa 2.500 skammta af bóluefni í vikunni

Bólusett verður gegn Kórónuveirunni á fimmtudag, 3. júní, og föstudag, 4. júní, í húsnæði Landhelgisgæslunnar á Ásbrú. Alls verða gefnir um 2.500 skammtar að þessu sinni.

Haldið verður áfram með seinni bólusetningar og það sem eftir er af forgangshópum, auk þess sem boðið verður allt niður í árgang 1989 í umframbólusetningar
Haldið verður áfram með seinni bólusetningar og miðað að því að klára fyrstu bólusetningar fyrir árganga niður að 1980.

Þá er verið að undirbúa slembiúrtaksboðanir sem gert er ráð fyrir að fara af stað með í næstu viku, en dagskráin verður auglýst betur síðar, segir í tilkynningu.