Nýjast á Local Suðurnes

Átta í gæsluvarðhaldi vegna smyglmála

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Átta einstaklingar sitja í gæsluvarðhaldi hjá lögreglunni á Suðurnesjum vegna smyglmála. Öll málin komu upp í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, þrjú í september en hin í ágúst.

Það sem af er ári hefur lögreglan á Suðurnesjum lagt hald á 38 kíló af sterkum fíkniefnum og þar af eru 28 kíló af kókaíni.