Nýjast á Local Suðurnes

Breyttur opnunartími þjónustumiðstöðva

Frá og með fimmtudeginum 2. maí næstkomandi verður opnunartími þjónustumiðstöðvar fyrir Grindvíkinga í Tollhúsinu, Tryggvagötu 19 í Reykjavík, frá klukkan 12-16 virka daga. Þjónustumiðstöðin að Smiðjuvöllum 8 í Reykjanesbæ verður opin frá klukkan 14-16 mánudaga og þriðjudaga. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Grindavíkurbæ, þar segir að opnunartími þjónustuvers sveitarfélagsins í Tollhúsinu sé hinsvegar frá klukkan 10-16 virka daga. Hægt er að bóka viðtal við félagsráðgjafa með því að hafa samband við þjónustuver í síma 420-1100 eða senda tölvupóst á grindavik@grindavik.is”