Nýjast á Local Suðurnes

Eldgosinu lokið

Eldgosinu sem hófst þann 16. Mars síðastliðinn í Sundhnúkagígaröð er lokið. Gosið stóð yfir í tæpa 54 daga.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu, en þar segir að sérfræðingar Almannavarna hafi flogið dróna yfir gosstöðvarnar við Sundhnúk í gærkvöldi og þá var enga virkni að sjá í gígnum.

Gosórói hafði farið minnkandi í gær og engar hraunslettur sáust úr gígnum í nótt. Þessu eldgosi sem stóð yfir í tæpa 54 daga er því lokið. Kvikusöfnun undir Svartsengi heldur þó áfram og eru auknar líkur á nýju kvikuhlaupi og öðru eldgosi. Fyrirvari á nýju eldgosi gæti orðið mjög stuttur.