Nýjast á Local Suðurnes

Ölvaður unglingur velti bifreið

Ölvaður ökumaður velti bifreið sinni í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikinni. Hann er ungur að árum og hafði ekki öðlast ökuréttindi. Atvikið varð með þeim hætti að ökumaðurinn ók um götur Grindavíkur og missti stjórn á bifreiðinni með þeim afleiðingum að hún hafnaði á ljósastaur og í framhaldi af því utan vegar. Hann komst út úr bifreiðinni og slapp án meiðsla.

Annar ökumaður var einnig handtekinn fyrir ölvun við akstur, þar var á ferðinni erlendur ferðamaður.

Þá voru sjö ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum. Sá sem hraðast ók mældist á 129 km. hraða á Reykjanesbrautinni þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund.