Nýjast á Local Suðurnes

Lions lætur sig lestur varða – Halda málþing í Íþróttaakademíunni

Lionshreyfingin á Íslandi stendur fyrir árlegu málþingi þar sem einblínt er á lestrarvanda og hvernig hægt sé að bregðast við honum, en hreyfingin hefur um árabil látið sig lestur varða. Málþingið er að þessu sinni haldið í Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ og fer fram þann 5. nóvermber næstkomandi.

Málþingið hefst klukkan 10:30 og stendur til klukkan 13:00. Margt fróðlegra erinda verður á dagskrá og er aðgangur ókeypis og öllum heimill.

 

Dagskrá málþingsins í ár er eftirfarandi:

-Setning: Árni Brynjólfur Hjaltason fjölumdæmisstjóri Lions.
-Opnun: Helgi Arnarson fræðslustjóri Reykjanesbæjar.
-Lestrarátak Lions: Hrund Hjaltadóttir lestrarátaksstjóri Lions.
-Læsi – hvað er það? Ragnheiður Gestsdóttir rithöfundur og formaður Ibby á Íslandi.
-Að skrifa sig til læsis: Sigrún Jóhannsdóttir talmeinafræðingur og framkvæmdastjóri TMF Tölvumiðstöðvar.
-Lestur er ævilöng iðja: Hrefna Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla.
-Hvað getum við öll gert til að hjálpa? Fyrirspurnir og umæður.
-Slit: Árni Brynjólfur Hjaltason fjölumdæmisstjóri Lions

Fundarstjóri er Jórunn J. Guðmundsdóttir lestrarátaksfulltrúi 109A.