Nýjast á Local Suðurnes

Kvenfélag Grindavíkur hefur sölu á barmmerki félagsins

Á næstu dögum mun Kvenfélag Grindavíkur hefja sölu á barmmerki félagsins, sem ber tákn félagsins og er teiknað af Evelyn Adolfsdóttir sem var mikil kvenfélagskona. Allur ágóði af merkinu rennur í jólaaðstoð líknarfélaga í Grindavík fyrir árið 2015.

Merkið heitir „Hið sjáandi auga” sem lýsir einmitt vel hvernig kvenfélagið okkar starfar, við höfum vakandi augu með því hvar þörfin er mest í samfélaginu okkar. Formleg sala á merkjunum hefst í kvennamessunni næstkomandi sunnudag.

Á myndinni selur Guðbjörg Ásgeirsdóttir gjaldkeri Sólveigu Ólafsdóttur formanni fyrsta merkið.