Vitahjón fá viðurkenningu fyrir einstakt starf í ferðaþjónustu

Vitahjónin Stefán Sigurðsson matreiðslumeistari og Brynhildur Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri voru heiðruð sérstaklega á setningarhátíð Sandgerðisdaga fyrir einstakt starf í ferðaþjónustu- og menningarmálum í Sandgerðisbæ.
Stefán og Brynhildur Kristjánsdóttir byggðu Vitann árið 1982 og hafa rekið hann allar götur síðan, á staðnum er meðal annrs boðið upp á hádegisverðarhlaðborð, sérréttarseðil og einnig upp á veislur við öll tækifæri, getur tekið á móti öllum stærðum af hópum og er með spennandi hópmatseðla og glæsilega veislusali.
Sigrún Árnadóttir bæjarstjóri hélt ræðu í tilefni þess og afhenti hjónunum viðurkenninguna.