Kristinn og Maciek með flotta innkomu í sínum fyrsta landsleik
![Kristinn njardv korfub](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2017/05/Kristinn-njardv-korfub.jpg?resize=620%2C264)
Njarðvíkingarnir Kristinn Pálsson og Maciek Baginski léku í dag báðir sinn fyrsta A-landsleik fyrir Íslands hönd, þegar Ísland tapaði 57-71 fyrir Kýpur á Smáþjóðaleikunum, sem fram fara í San Maríno. Báðir komu þeir Kristinn og Maciek inn af bekknum, Kristinn með 3 stig og 3 fráköst á tæpum 17 mínútum og Maciek með 5 stig og 6 fráköst á tæpum 18 mínútum.
Maciek samdi á dögunum um að leika með Njarðvíkingum á næsta tímabili og Kristinn er uppalinn í herbúðum Njarðvíkinga. Körfuknattleiksdeild UMFN óskar þeim félögum til hamingju með fyrstu A-landsleikina sína, ít ilkynningu, og sendir þeim og íslenska landsliðinu baráttukveðjur á Smáþjóðaleikunum í San Marínó.