Farþegar til Kanada þurfa rafræna ferðaheimild
![toronto canada](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/08/toronto-984543_1280.jpg?resize=620%2C264)
Kanadísk stjórnvöld hafa upplýst utanríkisráðuneytið um að frá og með 29. september 2016 verði allir þeir sem fljúga til Kanada að hafa rafræna ferðaheimild, svokallaða eTA. Þetta á einnig við um þá sem millilenda þar. Ráðuneytið beinir þeim tilmælum til íslenskra ríkisborgara sem hyggjast fljúga til Kanada að sækja um rafræna ferðaheimild í tíma.
Í mars sl. hófu kanadísk stjórnvöld að krefjast rafrænnar ferðaheimildar en veittu jafnframt hálfs árs aðlögunartíma fyrir farþega. Honum lýkur í september og þá verða flugfarþegar að hafa slíka heimild, að frátöldum kanadískum og bandarískum ríkisborgurum og farþegum með gilda vegabréfsáritun.
Rafræna áritunin er tengd vegabréfi og gildir í allt að fimm ár en skemur ef vegabréf rennur út fyrir þann tíma. Sótt er um á netinu og beina kanadísk yfirvöld þeim tilmælum til ferðalanga að þeir sæki um áður en þeir festa kaup á farmiða til Kanada.
Allar nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu kanadískra stjórnvalda og á síðu sendiráðs Kanada á Íslandi