Nýjast á Local Suðurnes

Sprungur myndast og stækka á milli daga

Sprungur hafa myndast á Grindavíkurvegi og breikkað nokkuð frá í gær. Sprungur hafa myndast nær Grindavík en áður en auk þess eru farnar að myndast sprungur á þeim stað sem búið var að gera við nærri þeim stað þar sem landrisið á sér nú stað.

Eftirlitsmaður Vegagerðarinnar segist finna talsverðan mun á veginum í dag miðað við í gær, miðvikudag, segir í tilkynningu.

Myndir: Vegagerðin

Ekki er þörf á að loka veginum en Vegagerðin fylgist grannt með þróun mála í góðri samvinnu við lögreglu og Almannavarnir.