Nýjast á Local Suðurnes

Holtaskóli og Stóru-Vogaskóli í úrslit Skólahreysti

Holtaskóli og Stóru-Vogaskóli verða fulltrúar Suðurnesja í úrslitum í Skólahreysti sem fram fara þann 20. apríl næstkomandi. Þetta er í fyrsta skipti sem lið Stóru-Vogaskóla nær þessum áfanga. Alls var keppt í 10 riðlum á landsvísu, en lið Stóru-Vogaskóla náði öðru sæti í sínum riðli.

Lið Holtaskóla sigraði í sínum riðli með 77 stig. Auk sigurvegaranna í hverjum riðli komast tvö efstu liðin áfarm af þeim sem lentu í öðru sæti í sínum riðli, lið Stóru-Vogaskóla lenti í efsta sæti þessara liða, með 43,5 stig.

Úrslitin verða 20. apríl í Laugardagshöll og verða í beinni útsendingu á RÚV.