Nýjast á Local Suðurnes

Sá seinasti til að yfirgefa staðinn yfirgefur hann

Sindri Kristinn Ólafsson og knattspyrnudeild Keflavíkur munu ekki endurnýja samninga sína og því kveður Sindri Keflavík í bili.

Sindri Kristinn sem hefur verið aðalmarkvörður Keflavíkur undanfarin sex ár og hefur leikið 162 leiki í deildar og bikarkeppni og er orðinn næst leikjahæsti markmaður félagsins á eftir Ómari Jóhannssyni.

Sindri er uppalinn Keflvíkingur og hefur aldrei leikið með öðru liði heldur en Keflavík, segir í tilkynningu frá félaginu.

Sindri lék sinn fyrsta leik með meistaraflokki árið 2014 gegn Fram á laugardalsvelli í Pepsi deildinni. Sindri er mikill félagsmaður sem hefur lagt sig allann fram fyrir félagið okkar bæði innan vallarins og utan hans, segir í tilkynningunni.

Knattspyrnudeild Keflavíkur vill þakka Sindra fyrir allt hans framlag til félagsins og leggja áherslu á það að Sindri er alltaf velkominn aftur til Keflavíkur. Við óskum Sindra einnig góðs gengis í því sem hann tekur sér fyrir hendur. Sindri hefur verið holdgervingur Keflavíkur og fyrir það erum við þakklát.

Það þurfti aldrei að spyrja Sindra um að gera eitthvað fyrir félagið hvort sem það var tengt meistaraflokki karla, kvenna, yngriflokkum eða umgjörð félagsins, alltaf fyrsti maður á staðinn og seinastur að yfirgefa hann. Sannur Keflvíkingur, segir í tilkynningunni.