Umhverfisverðlaun Sandgerðisbæjar

Undanfarin ár hefur orðið mikil vakning á meðal bæjarbúa hvað varðar garðrækt og umhirðu húsa. Sangerðisbær veitti á dögunum árlegar umhverfisviðurkenningar bæjarins til eigenda þeirra eigna sem þykja snyrtilegar og vel hirtar. Viðurkenningarnar voru afhentar við hátíðlega athöfn á setningu Sandgerðisdaga í Safnaðarheimilinu.
Holtsgata 3 var verðlaunagarðurinn í ár en eigendur hans eru Hervör Steina Þorkelsdóttir og Sigurður Magnússon.
Einnig voru aðrar viðurkenningar veittar:
Viðurkenning fyrir snyrtilegt umhverfi húss og lóðar: Bjarmaland 7, eigendur Salóme Kristjánsdóttir og Kári Sæbjörnsson.
Viðurkennig fyrir gróskumikin og vel við haldinn garð: Stafnesvegur 4, eigendur Valgerður A. Bergsdóttir og Elís Björn Klemensson.
Viðurkenning fyrir snyrtilegt umhverfi fyrirtækis: I-Stay tjaldstæði, eigendur Hjördís Ósk Hjartardóttir og Jónas Ingason.