Nýjast á Local Suðurnes

Lögregla ferjaði ofurölvaða flugfarþega um flugstöðina í hjólastólum

Talsverðar annir voru hjá lögreglunni á Suðurnesjum í vikunni vegna ölvunar farþega í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Erlend kona gekk á einstefnuhlið í töskusal og datt. Þá var þrennt handtekið í flugstöðinni sem ýmist missti af flugi eða var vísað frá vegna ölvunar.

Einn farþega til viðbótar sem millilenti í Keflavík,  varð lögregla að ferja um flugstöðina í hjólastól  þar sem honum var meinað að halda ferð sinni áfram en stóð ekki í fæturna sökum ölvunar. Sama máli gegndi um annan farþega sem hugðist fara til Póllands en komst ekki lengra heldur en á bekk við útgönguhlið þar sem hann sofnaði ölvunarsvefni. Hann var settur í hjólastól og færður í töskusal þar sem innritaður farangur hans var sóttur. Vegna slæmrar hegðunar mannsins varð að handtaka hann og færa á lögreglustöð. Er þetta í annað skiptið á fáeinum dögum sem þessi sami maður kemur við sögu lögreglu í flugstöðinni af sömu ástæðum