Nýjast á Local Suðurnes

Líkur á gasmengun í Reykjanesbæ

Ljósmynd: Reykjanesbær.is / OZZO

Gasmagn hefur aukist aukist í kjölfar þess að ný sprunga opnaðist á gossvæðinu við Fagradalsfjall. Næsta sólarhringinn er breytilegur vindur í kringum gosstöðvarnar og samkvæmt vef Veðurstofunnar fer vindur vaxandi af suðaustri í nótt og því viðbúið að gas muni finnast í Vogum og mögulega í Reykjanesbæ.

Á heimasíðu Reykjanesbæjar eru íbúar hvattir til að fylgjast vel með á vef Veðurstofunnar næstu daga og gera ráðstafanir eins og loka gluggum ef útlit er fyrir hækkuðum gildum á svæðinu. Hægt er að fylgjast með loftgæðum í Reykjanesbæ inni á loftgæði.is og einnig ráðleggingar um viðbrögð við loftmengun vef Umhverfisstofunnar.

Daglega spá Veðurstofunnar um gasmengun má finna hér