sudurnes.net
Umhverfisverðlaun Sandgerðisbæjar - Local Sudurnes
Undanfarin ár hefur orðið mikil vakning á meðal bæjarbúa hvað varðar garðrækt og umhirðu húsa. Sangerðisbær veitti á dögunum árlegar umhverfisviðurkenningar bæjarins til eigenda þeirra eigna sem þykja snyrtilegar og vel hirtar. Viðurkenningarnar voru afhentar við hátíðlega athöfn á setningu Sandgerðisdaga í Safnaðarheimilinu. Holtsgata 3 var verðlaunagarðurinn í ár en eigendur hans eru Hervör Steina Þorkelsdóttir og Sigurður Magnússon. Einnig voru aðrar viðurkenningar veittar: Viðurkenning fyrir snyrtilegt umhverfi húss og lóðar: Bjarmaland 7, eigendur Salóme Kristjánsdóttir og Kári Sæbjörnsson. Viðurkennig fyrir gróskumikin og vel við haldinn garð: Stafnesvegur 4, eigendur Valgerður A. Bergsdóttir og Elís Björn Klemensson. Viðurkenning fyrir snyrtilegt umhverfi fyrirtækis: I-Stay tjaldstæði, eigendur Hjördís Ósk Hjartardóttir og Jónas Ingason. Meira frá SuðurnesjumSíldarkvöld Knattspyrnudeildar Njarðvíkur á föstudagskvöldMugison heldur tónleika í Stapa – Gestir fá eintak af nýju plötunniHalda tónleika til styrktar Minningarsjóðs ÖllaHvaða lag vilt þú heyra yfir flugeldasýningunni? – Taktu þátt í könnuninni!Reykjanesbær mætir Árborg í Útsvari á föstudagDagskrá Ljósanætur tekur á sig myndVinnu við fyrsta áfanga ungmennagarðsins í Grindavík að ljúkaHeimsmeistari unglinga með skáknámskeið í VogumHeilsuleikskólinn Háaleiti á Ásbrú fékk GrænfánannCourtyard hlýtur eftirsótt verðlaun annað árið í röð