Nýjast á Local Suðurnes

Ókeypis aðgangur skilaði 26% fjölgun gesta

Menningarfulltrúi Reykjanesbæjar lagði fram ársskýrslu Duus Safnahúsa á fundi menningarráðs fyrir helgi, í skýrslunni kemur meðal annar sfram að starfsemin á síðasta ári hafi verið með hefðbundnu sniði; fjölbreytt viðburðadagskrá var í gangi allt árið þar sem 22 nýjar sýningar voru opnaðar auk þeirra þriggja sem teljast fastar sýningar, móttökur og alls kyns fundir fóru einnig fram í húsinu.

Gestir í Duus Safnahús voru 31.845 talsins, en það er fjölgun um 26 % frá fyrra ári enda ókeypis aðgangur stærstan hluta ársins í tilefni afmælis Byggðasafns Reykjanesbæjar og Listasafns Reykjanesbæjar. Duus Safnahús fengu Hvatningarverðlaun ferðaþjónustunnar á Reykjanesi þetta árið.