Nýjast á Local Suðurnes

Hverfahleðslur opna í Reykjanesbæ

 Í dag opnuðu fyrstu hleðslustöðvarnar, á vegum Reykjanesbæjar, fyrir rafmagnsbíla og eru þær staðsettar við Ráðhúsið. Verkefnið var boðið út og sér Orka náttúrunnar um verkefnið fyrir hönd sveitarfélagsins.

Á næstunni munu svo bætast við fleiri stöðvar og verða þær staðsettar við Keili, Stapaskóla og Vatnaveröld (staðsetningarnar má sjá merktar með grænum punktum á meðfylgjandi korti). Vonir standa til að veðurskilyrði verði okkur hagstæð þannig að hægt verði að halda áfram með fleiri staðsetningar og opna fleiri stöðvar áður en langt um líður. Bæjarbúar mega því eiga von á því að sjá fleiri stöðvar bætast við jafnt og þétt á næstu mánuðum, segir í tilkynningu.

Á kortinu sem fylgir hér með má sjá gróflega áætlaðar þær staðsetningar sem verið er að horfa til að koma fyrir hleðslustöðvum en þær gætu þó átt eftir að breytast eitthvað. Við val á staðsetningum hleðslustöðvanna var horft til þess að þær væru dreifðar um sveitarfélagið, skilyrði fyrir afhendingu á raforku væru góð og að þær væru aðgengilegar fyrir bæjarbúa.

Við fögnum þessu skrefi sem styður okkur enn frekar í áttina að orkuskiptum í samgöngum og vonum að þessari uppbyggingu á hleðsluinnviðum verði vel tekið af bæjarbúum, segir í tilkynningu.

Orka Náttúrunnar mun alfarið sjá um reksturinn á hleðslustöðvunum og bendum við bæjarbúum á að snúa sér til þeirra fyrir nánari upplýsingar. Á vefsíðu þeirra er að finna ítarlegar upplýsingar bæði um hverfahleðslur sem og ýmsa fræðslu um hleðslur og rafbíla.