Nýjast á Local Suðurnes

Metinn óhæfur til að fara með flugvél

Óskað var eftir aðstoð lögreglu í flugstöðvardeild lögreglunnar á Suðurnesjum við að vísa ölvuðum manni úr flugi sem var á leið til Osló. Vegna dónalegrar framkomu sinnar var hann metinn óhæfur til að fara með vélinni og mátti hann una því.

Þá þurfti að lenda tveimur flugvélum á Keflavíkurflugvelli í vikunni vegna veikinda farþega. Í öðru tilvikinu var um ungan dreng að ræða og í hinum tilvikinu konu sem veiktust um borð í vélunum svo snúa varð þeim af leið og lenda hér. Voru þau flutt með sjúkrabifreiðum undir læknis hendur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.