Nýjast á Local Suðurnes

Einn framúrstefnulegasti fönk trommari heims mætir í Hljómahöll

Mynd: Skjáskot BBC

Bandaríski tónlistarmaðurinn Louis Cole heldur tónleika í Hljómahöll þann 15. febrúar næstkomandi. Hann er álitinn einn af framúrstefnulegustu fönk trommurum heims í dag og hafa myndbönd kappans á Youtube fengið milljónir áhorfa. Tónleikarnir fara fram föstudagskvöldið 15. febrúar og hefjast klukkan 20:00.

Louis Cole  er álitinn einn af framúrstefnulegustu fönk trommurum heims í dag. Markmið hans með tónlist sinni er að tjá djúpar tilfinningar sínar en óhætt er að segja að tónlist hans sé mjög tilfinningarík. Louis Cole hefur gert ótal myndbönd við tónlist sína sem hafa orðið gríðarlega vinsæl á YouTube. Myndbönd við lögin Weird Part of The Night, Bank Account, Blimp, Thinking og F it up hafa samanlagt fengið margar milljónir áhorfa en sjón er sögu ríkari. Myndböndin, sem einkennast af miklum húmor, gripu meðal annars athygli meðlima hljómsveitarinnar Red Hot Chili Peppers sem buðu honum að hita upp fyrir sig á hljómleikaferð þeirra um heiminn árið 2017.

Louis Cole er með mörg járn í eldinum en hann er einnig annar meðlimur hljómsveitarinnar Knower sem nýtur mikilla vinsælda og þá sérstaklega á YouTube fyrir myndbönd sín. Hann á lag í kvikmyndinni Lego Ninjago og hann hefur samið lög fyrir listamenn á borð við Thundercat, Seal, Janet Jackson og fleiri.

Louis Cole gaf út plötuna Time í ágúst síðastliðnum og hefur hún fengið einróma lof gagnrýnenda, má þar helst nefna Pitchfork, The 405 og The Line of Best Fit.

Auk Louis Cole mun tónlistarkonan Genevieve Artadi (meðlimur Knower) koma fram og hljómsveitin Moses Hightower.
Boðið er upp á rútuferðir á tónleikana frá Reykjavík. Rútan fer frá BSÍ (N1 planinu) til Hljómahallar kl. 18:30 og fer aftur til Reykjavíkur um leið og tónleikunum lýkur. Miðaverð fyrir báðar ferðir er 3.000 kr. á mann. Rúturnar eru merktar BUS4U.

Í miðakaupferlinu kemur upp valmöguleiki um að bæta við rútuferðum þegar tónleikamiðarnir hafa verið valdir. Þeir sem hafa nú þegar keypt sér miða á tónleikana en vilja kaupa miða í rúturnar geta sent tölvupóst á info@hljomaholl.is og fengið sendan hlekk beint á rútuferðirnar.
Louis Cole á YouTube
Louis Cole á Facebook
Louis Cole á Twitter
Louis Cole á Instagram