Þriggja bíla árekstur á flughálli Reykjanesbraut
Þriggja bílar árekstur varð á Reykjanesbraut rétt fyrir klukkan sjö í kvöld. Viðbragðsaðilar eru á vettvangi við Straumsvík og gera má ráð fyrir töfum á umferð þar sem brautin er einbreið á þessum kafla.
Samkvæmt vef Vegagerðarinnar er flughált á brautinni í augnablikinu.