Nýjast á Local Suðurnes

Þjónustuskerðing á HSS í sumar

Vegna manneklu og sumarleyfa mun HSS þurfa að skerða ýmsa þjónustu í sumar, en þrátt fyrir það verður öllum bráðaerindum sinnt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni, en þar segir einnig að öðrum erindum en bráðaerindum kann að verða forgangsraðað í þágu öryggis skjólstæðinga stofnunarinnar.

AÐEINS SLYSUM OG BRÁÐAERINDUM VERÐUR SINNT Á SLYSA- OG BRÁÐAMÓTTÖKUNNI. Einstaklingar eru vinsamlegast beðnir um að leita ekki með önnur erindi þangað.

ATH skráðir skjólstæðingar HSS hafa forgang á þjónustu. Þeir sem ekki eru skráðir á heilsugæslustöðvar HSS í Reykjanesbæ, Grindavík eða Vogum gætu þurft að bíða eða sækja þjónustu á sína heilsugæslustöð.

Síðdegisvakt lækna verður með hefðbundnu sniði og hægt að panta tíma samdægurs frá kl. 13:00.

Reynt verður að sinna flestum erindum en reikna má með að bið verði á þjónustu. HSS biðlar til skjólstæðinga sinna að sýna þessum vanda skilning.

ATHUGIÐ AÐ ÖLLUM BRÁÐAERINDUM VERÐUR SINNT. Segir í tilkynningunni.