Þrír teknir með fíkniefni
![amfetamin logr](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2019/05/amfetamin-logr.jpg?resize=620%2C264)
Lögreglan á Suðurnesjum handtók þrjá aðila á föstudag sem allir voru með fíkniefni í fórum sínum. Tveir þeirra eru jafnframt grunaðir um fíkniefnasölu. Í tilkynningu segir að á heimili eins þeirra hafi fundist talsvert magn af kannabisefnum í neyslueiningum, auk „sölubúnaðar og vogar“ og lyfsseðilsskyldra lyfja.
Þá var lagt hald á umtalsverða fjármuni sem maðurinn hafði í fórum sínum sem taldir voru ágóði af fíkniefnasölu.
Einn mannanna var handtekinn vegna gruns um fíkniefnaakstur og reyndist sviptur ökuréttindum. Þá var hann með kannabisefni í neyslueiningum „sem falin voru í hurðarkarmi bifreiðarinnar sem hann ók, undir innréttingunni,“ að því er segir í tilkynningu.
Lögregla kveðst ítrekað hafa haft afskipti af manninum, einkum vegna brota tengdum fíkniefnum. Þá sé þetta í annað skipti sem hann var staðinn að akstri án ökuréttinda. Þriðji maðurinn var með „allnokkuð“ af kannabisefnum í fórum sínum.