Töluverð skjálftavirkni á Reykjanesi
Töluverð jarðskjálftavirkni hefur verið á Reykjanesskaga undanfarna daga samkvæmt vef Veðurstofu Íslands. Skjálfti upp á 3,5 mældist upp úr miðnætti í gær og fannst sá vel í Grindavík.
Stærsti skjálftinn, upp á 3,6, varð þann 1. desember og fannst sá víða.