Adam Eiður leikur með Hetti á næsta tímabili
Adam Eiður Ásgeirsson hefur ákveðið að söðla um og leika með nýliðum Hattar í Dominos-deildinni í körfuknattleik á næsta tímabili. Adam Eiður sem hefur leikið með Njarðvíkingum upp yngri flokkana lék um 10 mínútur að meðaltali í leik á tímabilinu sem er að ljúka.
Forráðamenn Hattar eru ánægðir með að fá þennan unga og efnilega Njarðvíking í sínar raðir:
“Við bjóðum Adam velkominn til okkar og erum við mjög ánægð með þessa viðbót við liðið, Adam mun flytja austur í lok sumars.” Segir í tilkynningu frá Hetti.