Nýjast á Local Suðurnes

Móta verkefni sem snýr að geðheilsu eldri borgara

Lýðheilsuráð Reykjanesbæjar hefur falið lýðheilsufulltrúa að móta verkefni er snýr að eflingu geðheilsu eldri borgara í Reykjanesbæ. Stefnt er að því að allir helstu hagsmunaaðilar bæjarfélagsins verði þátttakendur í verkefninu.

Markmiðið er að bæta geðheilsu, draga úr félagslegri einangrun og efla samstarf.
Dæmi um samstarfsaðila væru félag eldri borgara á Suðurnesjum, kirkjurnar, félagsþjónustan, félagsstarf á Nesvöllum, íþrótta- og tómstundafulltrúi, Rauði krossinn, Öldungaráð Reykjanesbæjar og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Verkefnið fellur undir aðgerðaráætlun í lýðheilsumálum 2021.